Góðan daginn

Mer brá nú heldur betur í brún er ég leit útum gluggann hjá mer í morgun kl.5.30 Bara allt hvítt Gasp  Yngsti sonurinn vaknað sko kl 5.oo og ég gafst upp með að látann sofa lengur og við fórum framúr.

Annars hef ég það bara ágætt bara smá sibbin en ætla ekki að fara að sofa því þá sofna ég ekki fyrr en seint og síðarmeir í kvöld. mer var hugsað aðeins fram í tímann í morgun eftir að allir voru farnir í skóla og vinnu. Að það verður nú heldur betur fjör á Borginni næsta vetur þá first kom hugsunin "hvað er ég að pæla að koma með annann unga" svona einhvernveginn þyrmdi yfir mig ég kemst aldrei útúr þessum bleijuskiptum og vesni og blablabla... En sú hugsun stoppaði  ekki lengi við.

ég er bara ánægð með allt þetta sem ég hef. Það er ekki svo langt síðan að ég var að berjast í barnavernd og öll því. Þetta hefði allt geta farið fjandans til ef ég hefði verið dæmd óhæf móðir þá hefði ég aldrei fengið Daniel aftur og eitthvað um ráðið með framtíð  drengjanna minna. Svo þetta er nákvæmlega eins gott og hægt er. Ég mætti kanski vera duglegri við að rækta mig og heimilið sem hefur setið á hakanum í laaangaann tíma og mer líður ekkert alltof vel með það. En ég get alveg lagað þetta ef ég nenni..ég bara nenni ekki að þurka af og þrífa mer finnst það bara leiðinlegt þessa dagana og ég gerið það ekki vegna þess. Kanski breytist það fljótt. Jæja hef þetta gott í bili 

Kveðja Linda

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Hæ sæta mín  Allt hvítt hjá ykkur,hér í höfuðborginni hefur verið frábært veður í heila 2 dag  Ég eyði megninu af deginum í einhverskonar tiltekt,samt erum við bara 3 í heimili.............ég og 2 hrikaleg draslarabörn  Ég verð þó að viðkenna að mér þykir ekkert voða gaman að þurrka af  Ég hefði nú bara ekkert á móti því að verða svo heppin að eignast annað barn  Veistu núna kynið ?

Katrín Ósk Adamsdóttir, 29.4.2008 kl. 20:42

2 Smámynd: Linda Rós Jóhannsdóttir

hæ hæ

nei ég veit ekki kynið það kemur bara í ljós síðar á meðgöngunni hehe. snjórinn stoppaði stutt hann var horfinn bara  um kvöldið 

Linda Rós Jóhannsdóttir, 29.4.2008 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband